Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 22.11.2024 19:48:34


Ξ Valmynd

4.3  Bifreiðir

Bifreiðaeign í árslok 2023 færist í reit 06. Heimilt er að færa verð bifreiða niður um 10% frá því verði sem þær voru taldar til eignar á framtali 2023. Bifreiðir sem keyptar voru á árinu 2023 færast á kaupverði. Bifreiðir barna færast einnig hér. ATH. Framteljandi þarf í flestum tilfellum sjálfur að færa inn kaupverð nýrra bifreiða sem keyptar voru á árinu 2023!
 
Á vefframtal eru árituð fastanúmer bifreiða. Hafi framteljandi átt bifreiðina árið áður er verð hennar einnig áritað, niðurfært um 10%, en ella þarf hann að færa sjálfur inn kaupverðið.
 
Þegar um er að ræða kaupleigubifreiðir eru vaxtagjöld og eftirstöðvar bifreiðalána færð í lið 5.5 á framtalinu. Fjármögnunar- og rekstrarleigubifreiðar, án uppkaupsákvæða í samningi, eignfærast ekki hjá leigutaka.
 
Á sundurliðunarblaði eru tilgreindar allar bifreiðir sem skráðar eru á framteljendur skv. ökutækjaskrá Samgöngustofu.
 
Beiðni um afskráningu eða leiðréttingu á skráningu bifreiða skal beina til Samgöngustofu. Hægt er að nálgast afskráningareyðublað á vef Samgöngustofu (sjá hér).

ENGLISH

Automobiles

Automobile ownership at the end of 2023 shall be entered in field 06. The price of automobiles is permitted to be written down by 10% of the price at which they were declared by the taxpayer on the 2023 return. Automobiles purchased in 2023 are entered at the purchase price. Children’s automobiles are also entered here. ATTN: In most cases, the taxpayer must enter the purchase price of new automobiles purchased in 2023 themselves!

A request for deregistration or correction of automobile registration shall be directed to the Icelandic Transport Authority. A deregistration form is available on the website of the Icelandic Transport Authority (see here).

POLSKI

Samochody

Posiadane samochody na koniec 2023 roku należy umieścić w polu 06. Zezwala się na obniżenie ceny pojazdów o 10% od ceny, po której wliczono je do majątku w zeznaniu 2023. Samochody kupione w 2023 roku są wpisywane po cenie kupna. Samochody dzieci również umieszcza się w tym miejscu. UWAGA Osoba składająca zeznanie musi w większości przypadków sama wpisać cenę kupna nowych samochodów nabytych w 2023 roku!

Wniosek o wyrejestrowanie lub korektę wpisanych samochodów należy kierować do Samgöngustofa. Podanie o wyrejestrowanie dostępne jest na stronie Samgöngustofa (zob. tutaj).

 

Fara efst á síðuna ⇑