FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2023
4.1.2 Matsverð fasteigna
Fasteignir í byggingu teljast til eignar á kostnaðarverði skv. Húsbyggingarskýrslu RSK 3.03 en henni ber að skila vegna nýbygginga eða endurbóta á húsnæði (sjá nánar um eyðublaðið í kafla 7.5). Hafi fasteign t.d. verið metin fokheld til fasteignamats skal færa hana til eignar á því mati. Við bætist byggingarkostnaður sem til hefur fallið síðan, til ársloka 2022. Byggingarkostnaður vegna viðbygginga, breytinga eða endurbóta á þegar metnum eldri fasteignum skal færður sérstaklega til eignar á sama hátt.
Ómetnar fasteignir sem keyptar voru á árinu 2022 færast á kostnaðarverði, en eldri eignir á verði eins og það var fært í framtali 2022.
Fasteignir barna færast í þennan lið, með fasteignum forráðenda.