FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2022
7.8.8 Rafræn skil á vottorðum og viðbótargögnum
Með vefframtali er boðið upp á rafræn skil á vottorðum og öðrum viðbótargögnum sem geta þurft að fylgja umsókn um lækkun. Innlesturinn er gerður á eyðublaðinu sjálfu, RSK 3.05.
Hægt er að nota öll helstu skjalaform, en þó er ekki hægt að senda zip-skrár. Hámarksstærð á hverju skjali er 4Mb.
Eftirtalin skjalaform eru leyfileg:
.bmp | .jpg | .tif |
.doc | .tiff | |
.docx | .png | .txt |
.gif | .ppt | .xls |
.jpe | .pptx | .xlsx |
.jpeg | .rtf |
Á eyðublaðinu verður til listi þar sem hægt er að sjá hvort og þá hvaða skjöl framteljandi hefur lesið inn. Ef rangt skjal er lesið inn eða það sett í rangan kafla eyðublaðsins er hægt að fella það með því að smella á aðgerðina "eyða" í listanum.