Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.4.2024 06:48:30


Ξ Valmynd

3.1  Greitt í vefbanka

Um leið og skilagrein er skilað rafrænt verður til krafa í vefbanka gjaldanda, sem hann getur greitt þar, allt fram á eindaga. Sé krafa greidd síðar þarf að greiða hana hjá innheimtumanni ríkissjóðs.

Þegar gerð er breyting á skilagrein verður til ný krafa í vefbanka.  Eldri krafa verður áfram til í vefbankanum fram að eindaga en fellur þá úr gildi.   Mikilvægt er því að  velja rétta kröfu þegar greitt er.

Sé skilagrein skilað eftir eindaga er einnig hægt að greiða hana í vefbanka, ef hún er greidd samdægurs.

 

Fara efst á síðuna ⇑