FRAMTALSLEIĐBEININGAR 2019
2.5 Hreinar tekjur af atvinnurekstri
Í reit 62 færast hreinar tekjur af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Fjárhæðin flyst af samræmingarblaði RSK 4.05.
Ef um tap er að ræða færist engin fjárhæð í þennan reit.
Hjá hjónum færast hreinar tekjur hjá því hjóna sem stendur fyrir rekstrinum en þær skiptast á milli þeirra sé um sameiginlegan rekstur að ræða. Við skiptingu skal taka mið af vinnuframlagi hvors um sig.