2.2.4 Önnur hlunnindi
Önnur hlunnindi
Húsnæðishlunnindi skal færa í reit 136.
Færa skal launþega til tekna umráð hans yfir öðrum vélknúnum ökutækjum launagreiðanda en bifreiðum, s.s. mótorhjólum, torfæruhjólum, vélsleðum, fjórhjólum og öðrum sambærilegum tækjum. Sé um slík umráð að ræða teljast þau ætíð full og ótakmörkuð.
Hafi launagreiðandi vélknúið ökutæki á leigu eða til láns og láti launþega það í té til umráða skulu þau metin launþeganum til tekna á sama hátt og ef tækið væri í eigu launagreiðandans, sbr. það sem hér fer á eftir.
Greiði launamaður launagreiðanda sínum sannanlega fyrir afnot tækisins koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.
Við ákvörðun á fjárhæð hlunninda skal miða við aldur og verð tækis að meðtöldum virðisaukaskatti. Jafnframt þarf að taka tillit til þess hvort tækið er í eigu launagreiðanda eða hvort hann hefur það t.d. á rekstrarleigu. Niðurfærsla á verði til útreiknings á hlunnindunum reiknast alltaf af því verði sem byggt var á árið áður.
Tæki í eigu launagreiðanda.
Ársumráð tækis skulu miðast við 28% af upphaflegu kaupverði í hendi eiganda. Heimilt er að færa verð tækisins niður um 10% á ári, í fyrsta skipti á árinu eftir kaupár en mest þannig að viðmiðunarverð til útreiknings á hlunnindum verði aldrei lægra en 50% af kaupverði þess.
Tæki sem er ekki í eigu launagreiðanda.
Ársumráð slíks tækis skulu miðast við 28% af verði þess samkvæmt verðlista viðkomandi söluaðila þegar launagreiðandi fær umráð yfir tækinu, t.d. þann dag sem tækið er tekið á leigu. Heimilt er að færa verð tækisins niður um 10% á ári, í fyrsta skipti á árinu eftir að launagreiðandi fær umráð yfir því en mest þannig að viðmiðunarverð til útreiknings á hlunnindum verði aldrei lægra en 50% af verði þess.
Greiði starfsmaður sjálfur rekstrarkostnað tækis sem hann hefur til umráða skal lækka hlutfall hlunninda um 6% af hlunnindamatsverði þess, sbr. að framan. Með rekstrarkostnaði í þessu sambandi er átt við eldsneytiskostnað, smurningu, þrif o.þ.h.
Einkaflugvélar
Færa skal til tekna 200.000 kr. á hvern byrjaðan flugtíma vegna ferða í einkaþágu (20.000 kr. ef um er að ræða litlar eins hreyfils flugvélar).
Fatahlunnindi
|
Krónur
|
Morgunverður
|
338
|
Hádegisverður eða kvöldverður
|
507
|
Fullt fæði á dag
|
1.352
|
Húsnæðishlunnindi
Gildistala
|
Staðsetning
|
1,0
|
Reykjavík (þar með talið Kjalarnes), Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður
|
0,80
|
Grindavík, Suðurnesjabær (Sandgerði og Garður), Reykjanesbær, Vogar, Akranes, Akureyri, Árborg, Hveragerði, Ölfus
|
0,70
|
Önnur sveitarfélög
|
Eigi skal meta til tekna afnot af húsnæði í verbúðum eða vinnubúðum þar sem launamaður dvelur um takmarkaðan tíma í þjónustu launagreiðanda.
Sá sem fær vaxtalaust lán hjá launagreiðanda sínum eða fyrir milligöngu hans skal telja sér vaxtahagræðið til tekna. Telja skal til skattskyldra tekna mismun á vöxtum af lánum sem fengin eru hjá launagreiðanda, eða fyrir milligöngu hans, ef þeir eru lægri en þeir vextir sem birtir eru af Seðlabanka Íslands. Miða skal við stöðu láns í byrjun hvers mánaðar og almenna vexti þess mánaðar eins og það er birt í töflu um „bankavextir og dráttarvextir“ á heimasíðu Seðlabanka Íslands. Eftir atvikum skal miða við almenna vexti af verðtryggðum eða óverðtryggðum lánum. Sama á við um greiðslufresti og afborganir af kaupum á hlutabréfum eða öðrum eignum.