FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2018
8.4.3 Endurfjármögnun lána vegna íbúðarkaupa - hlutföllun
Dæmi um útreikning á hlutföllun láns
Í september 2005 tóku Jón og Gunna lán í Xbanka. Lánið var að fjárhæð kr. 12.825.000, lántökukostnaður var
kr. 325.000 og fengu þau því útborgaðar 12,5 milljónir. Með láninu greiddu þau upp tvö lán sem tekin höfðu verið til íbúðakaupa, eftirstöðvar samtals að fjárhæð kr. 10 milljónir og bílakaupalán að fjárhæð kr. 2,5 milljónir.
Lántaka hjá Xbanka | |
Heildarfjárhæð láns |
+ 12.825.000 |
Lántökukostnaður |
- 325.000 |
Útborgað lán alls |
= 12.500.000 |
Uppgreidd lán (sem mynduðu rétt til vaxtabóta)
|
|
Lánveitandi | Eftirstöðvar við uppgreiðslu |
Íbúðalánasjóður |
+ 7.151.866 |
Sparisjóðurinn |
+ 2.848.134 |
Uppgreidd lán alls |
= 10.000.000 |
Hlutfall | |
Uppgreidd lán / Útborgað lán | = Hlutfall til íbúðarkaupa |
10.000.000 / 12.500.000 | = 80,00% |
Eftirstöðvar nýja lánsins í árslok 2005 voru kr. 13.033.488. Þar af færast 80% af eftirstöðvunum í kafla 5.2 á framtalinu eða kr. 10.426.790 og afgangurinn eða 20% færast í kafla 5.5 eða kr. 2.606.698. Vaxtagjöldin eru alls kr. 475.623 (182.082 - 31.459 + 325.000). Skiptast þau í sömu hlutföllum, þ.e. 80% eða kr. 380.498 færast í kafla 5.2 og 20% eða kr. 95.125 í kafla 5.5.