FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2018
8.3.1 Útreikningur á tekjuskatti og útsvari
Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
Af fyrstu 10.016.488 kr. reiknast 22,5% tekjuskattur og af stofni umfram 10.016.488 kr. reiknast 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,44% á tekjuárinu 2017.
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1) |
11.000.000 |
|
22,5% tekjuskattur af 10.016.488 kr. + | 2.253.710 | |
31,8% tekjuskattur af 983.512 kr. + |
312.757 |
|
Sjómannaafsláttur 2) - |
0 |
|
Persónuafsláttur 3) - |
634.880 |
4) |
Tekjuskattur = |
1.931.587 |
5) |
Útsvar - 14,44% af stofni 6) + |
1.588.400 |
|
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars - |
0 |
7) |
Útsvar til innheimtu = |
1.588.400 |
- Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
- Sjómannaafsláttur féll alveg niður á tekjuárinu 2014.
- Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2017 er kr. 634.880.
- Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
- Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
- Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
- Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 20/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.