2.9.4 Skattfrjáls útborgun/ráđstöfun úr séreignarsjóđi vegna íbúđarkaupa
Samkvæmt lögum nr. 71/2026 er heimilt að nýta viðbótariðgjald í séreignarsjóð í samanlagt 10 ár (samtals 120 mánuði) til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin eru vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota (þar sem rétthafi er með skráð lögheimili).
Rétthafi þarf að vera skráður með að minnsta kosti 30% eignarhlut í íbúðarhúsnæðinu.
Skilyrði er að lánin séu tryggð með veði í íbúðarhúsnæði og að rétthafi hafi ekki nýtt skattfrjáls úrræði um að ráðstafa viðbótariðgjaldi til öflunar íbúðarhúsnæðis í samanlagt 10 ár.
Heimild einstaklings takmarkast við allt að 4% framlag rétthafa eða 333 þús. kr. og allt að 2% framlag launagreiðanda eða 167 þús. kr. af iðgjaldsstofni eða að hámarki samanlagt 500 þús. kr. fyrir hverja tólf mánuði á almanaksári, samtals í 120 mánuði. Fjárhæðin hækkar árlega í takt við vísitölu neysluverðs.
Greiðsla inn á lán getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur inneign rétthafa vegna greiddra iðgjalda á hverjum tíma. Skilyrði er að framlag rétthafa sé aldrei lægra en framlag launagreiðanda.
Hámarksfjárhæð sem færst getur í reit 443 í kafla 2.9 á tekjuhlið framtals er því skv. framansögðu 500.000 kr. og hámarskfjárhæð sem færst getur í reit 444 er þá 5.000.000 kr.
Sambærileg ákvæði er að finna í lögum nr. 111/2016 vegna kaupa á fyrstu íbúð (fjárhæðir sem færast í reiti 445 og 446).
Þessar úttektir úr séreignarsjóðum skv. ofangreindu eru skattfrjálsar.
Svona nýting úr séreignarsjóðum, sem er umfram það sem skattfrjálst er, skal færa í reit 243 í kafla 2.3 á tekjusíðu framtals sem skattskyldar tekjur.