Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 22.11.2024 19:26:09


Ξ Valmynd

2.3.10  Laun frá alţjóđastofnunum

Hér skal eingöngu færa eftirfarandi tekjutegundir:

  • Launatekjur sem greiddar eru embættismönnum, fulltrúum og öðrum starfsmönnum sem starfa hjá alþjóðastofnunum eða ríkjasamtökum, enda sé kveðið á um skattfrelsið í samningum sem Ísland er aðili að.
  • Eftirlaun og örorkulífeyri sem greiddur er þeim sem starfað hafa hjá stofnunum Evrópusambandsins, auk dánarbóta vegna þeirra sem greiddar eru til eftirlifandi maka og barna.
  • Staðaruppbót sem greidd er vegna starfa erlendis í þjónustu hins íslenska ríkis. Þeir einir teljast starfa erlendis í þessu sambandi sem eru fastráðnir, settir eða skipaðir starfsmenn við sendiráð Íslands, hjá sendiræðismönnum eða eru fastafulltrúar Íslands við alþjóðastofnanir sem Ísland er aðili að.

 

Fara efst á síđuna ⇑