Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 22.11.2024 19:03:24


Ξ Valmynd

8.3.4  Útreikningur barnabóta

Barnabætur eru tekjutengdar en ekki eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar samkvæmt skattframtali og greiddar eftirá. Barnabætur er greiddar með börnum til 18 ára aldurs. Á árinu 2019 eru greiddar bætur með börnum sem fædd eru á tímabilinu 2001-2018. Við ákvörðun barnabóta 2019 er miðað við fjölskyldustöðu eins og hún er í þjóðskrá 31. desember 2018. Þannig fær sá sem hefur barnið hjá sér í árslok 2018 barnabæturnar og skiptir þá ekki máli hvort barnið hafi verið á framfæri hans allt árið eða hluta úr ári.
  
Óskertar barnabætur hjóna eru:
Með fyrsta barni kr.

234.500

Með hverju barni umfram eitt  kr.

279.200

Viðbót vegna barna yngri en 7 ára (fædd 2012 - 2018) kr.

140.000


 
Óskertar barnabætur einstæðra foreldra:
Með fyrsta barni kr.

390.700

Með hverju barni umfram eitt  kr.

400.800

Viðbót vegna barna yngri en 7 ára (fædd 2012 - 2018) kr.

140.000


Skerðing vegna tekna reiknast í tveimur þrepum. Af tekjustofni* umfram 7.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki og umfram 3.600.000 kr. hjá einstæðu foreldri skerðast barnabæturnar um 4% með einu barni, 6% með tveimur börnum og 8% ef börnin eru þrjú eða fleiri.

Skerðingarhlutfallið hækkar í 5,5% með einu barni, 7,5% með tveimur börnum og 9,5% ef börnin eru þrjú eða fleiri, af þeim hluta tekjustofnsins sem er umfram 11.000.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki og umfram 5.500.000 kr. hjá einstæðu foreldri.

Viðbótarbarnabætur vegna barna yngri en 7 ára skerðast um 4%, með hverju barni, af tekjustofni umfram 7.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki og umfram 3.600.000 kr. hjá einstæðu foreldri.

 
* Tekjustofn til útreiknings barnabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að allar fjármagnstekjur eru hér meðtaldar. Laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á barnabótum.
 

Dæmi: Hjón með tvö börn, 5 og 10 ára.
Samanlagður tekjustofn hjóna kr.

8.300.000

Skerðingarmörk vegna tekna kr.

7.200.000

Stofn til skerðingar        kr.

1.100.000

     
Óskertar barnabætur (234.500 + 279.200) kr.

513.700

Skerðing vegna tekna (6% af 1.100.000) kr.

-66.000

Viðbót vegna barna yngri en 7 ára kr.

140.000

Skerðing vegna tekna (4% af 1.100.000) kr.  -44.000
Barnabætur verða kr.

543.700

Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna og verða kr. 271.850 hjá hvoru. Hjá sambúðarfólki sem á rétt á samsköttun reiknast barnabætur alltaf eins og hjá hjónum, hvort sem þau skila sameiginlegu framtali eða ekki.
 
Fyrirframgreiðsla barnabóta
Fyrirframgreiðslan nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Við ákvörðun á fyrirframgreiðslu er tekið mið af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda. Við uppgjör í júní er fyrirframgreiðslan dregin frá barnabótum eins og þær eru ákvarðaðar í álagningu. Eftirstöðvar eru greiddar út 1. júní og 1. október.

 

Fara efst á síðuna ⇑