FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2016
1.10 Búseta á Íslandi hluta úr ári
Hjá þeim sem flutt hafa til eða frá landinu á árinu 2015 eru dagsetningar áritaðar í kafla 1.6 á vefframtali. Það eru brottflutnings- og/eða heimflutningsdagar, eins og þeir eru skráðir í þjóðskrá. Kaflinn birtist ekki hjá þeim sem voru búsettir á Íslandi allt árið.
Telji framteljandi dagsetningar rangar þarf hann að leiðrétta þær. Ef áritun vantar, þarf framteljandi að skrá dagsetningar sjálfur.