FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2016
6.1 Launatekjur barns
1.1 Laun og starfstengdar greiðslur barns
Hér færast launatekjur barnsins.
Hér færast launatekjur barnsins.
1.2 Reiknað endurgjald barns
Í þennan lið færist reiknað endurgjald starfi barnið við atvinnurekstur forráðanda. Eftirfarandi viðmiðun skal hafa við ákvörðun á reiknuðu endurgjaldi barns árið 2015:
Sé barn 15 ára:
Mánaðarlaun 126.000 kr.
Árslaun 1.512.000 kr.
Sé barn 13 eða 14 ára:
Mánaðarlaun 109.000 kr.
Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
Árslaun 1.308.000 kr.
Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
1.3 Dagpeningar og hlunnindi barns
Hafi barnið fengið greidda dagpeninga vegna ferða á vegum vinnuveitanda skal færa þá til tekna í reit 23. Frádráttur á móti dagpeningum færist í reit 33. Fylla skal út eyðublaðið Dagpeningar RSK 3.11 vegna þessa frádráttar. Hér eru einnig færð laun sem greidd hafa verið í hlunnindum, svo sem fæðishlunnindum eða fatahlunnindum.