FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2016
1.1.1 Leiðrétting á þjóðskrárupplýsingum
Áritun úr Þjóðskrá - leiðréttingar
Ef áritun á framtal (nöfn, kennitölur, heimilisfang) er ekki rétt skal leiðrétting send til Þjóðskrár. Sama á við ef upplýsingar um börn á framfæri framteljanda í lið 1.1 eru ekki réttar eða vantar inn á framtalið. Athugið að börn sem fædd eru í desember 2015 eru hugsanlega ekki tilgreind á framtali og þarf þá að færa þau inn á það.
Fjölskyldumerking
Fjölskyldumerking segir til um fjölskyldustöðu í Þjóðskrá 31. des. 2015. Fyrsta tákntalan segir til um hjúskaparstöðu, þ.e.:
1 einhleypingur,
2 einhleypingur með börn yngri en 18 ára,
3 hjón,
6 samskattað sambúðarfólk,
7 sambúðarfólk sem hafði rétt til samsköttunar á sl. ári en var ekki samskattað,
* nýhafin sambúð og
9 framteljandi sem misst hefur maka sinn á sl. ári.
Önnur tákntalan segir til um fjölda barna yngri en 7 ára og þriðja um fjölda barna á aldrinum 7-17 ára á framfæri framteljanda.