Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 18.5.2024 23:02:18


Ξ Valmynd

7.5  Húsbyggingarskýrsla

Á Húsbyggingarskýrslu RSK 3.03 skal gera grein fyrir byggingu, viðbyggingu, breytingum og endurbótum á fasteignum.
 
Velja skal byggingarstig í árslok úr fellilista. Byggingarstig eru í samræmi við staðal, ÍST51:2021, sem stuðst er við í skráningu mannvirkja hjá HMS. Samkvæmt staðlinum er um að ræða neðangreind fjögur byggingarstig:
  • Byggingarleyfi. Dagsetning miðast við útgáfu byggingarleyfis leyfisveitanda.
  • Fokheld bygging. Dagsetning miðast við úttekt á fokheldi - ef hún er ekki gerð miðast við skoðun á eigninni.
  • Fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar. Dagsetning miðast við skoðun á eigninni.
  • Fullgerð bygging. Dagsetning miðast við skoðun/lokaúttekt á eigninni af hálfu viðkomandi yfirvalds.
Gera skal grein fyrir eigin vinnu við húsbygginguna á eyðublaðinu svo og gjafavinnu og skiptivinnu.
 
Annars vegar skal tilgreina aukavinnu sem eigandi leggur fram utan venjulegs vinnutíma við byggingu íbúðarhúsnæðis til eigin afnota. Vinna manns við eigin íbúð utan venjulegs vinnutíma er skattfrjáls ef hann uppfyllir eftirgreind tvö atriði:
    a) að hafa unnið fullan vinnutíma við hið eiginlega starf sitt og
    b) skilað eðlilegum árstekjum af því.
 
Hins vegar skal tilgreina eigin vinnu við íbúðarhúsnæði til eigin afnota, unna í venjulegum vinnutíma, svo og alla aðra skattskylda vinnu eiganda við húsbyggingu, svo sem við íbúðarhúsnæði sem ekki er ætlað til eigin afnota, sumarbústaði o.þ.h. Enn fremur verðmæti skiptivinnu í sambandi við eigin húsbyggingu.  Önnur eigin vinna og gjafavinna færist í ótölusettan reit í lið 2.3 á framtali.
 
Fjárhæðir sem hafa skal til viðmiðunar við mat á eigin vinnu árið 2023 eru sem hér segir:
 
Vinna ófaglærðs manns við eigin íbúð kr. 2.427 pr. klst.
Vinna faglærðs manns við eigin íbúð kr. 3.033 pr. klst.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑