Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 23.4.2024 20:27:37


Ξ Valmynd

7.21.1  Viðbót við auðlegðarskattsstofn - Útfylling eyðublaðsins

Gerð er grein fyrir endurreikningi hlutabréfaeignar í árslok 2011, til raunvirðis, á eyðublaði RSK 3.23.
Í fyrstu þrjá dálkana skal skrá hlutabréfaeign í árslok 2011 eins og bar að telja hana fram í skattframtali 2012, þ.e. innlend hlutabréf á nafnverði og erlend hlutabréf á kaupverði.
Hjón fá hvort sitt eyðublaðið með helmingi hlutabréfaeignar í árslok 2011, eins og hún var talin fram í framtali 2012.
Á eyðublaðinu á að leiða út raunvirði hlutabréfa. Ef verðmæti bréfanna er umfram nafnverð myndar mismunurinn stofn til auðlegðarskatts. Neikvæður mismunur færist sem 0.
Ef félag er skráð á markaði skal nota markaðsvirði hlutabréfanna eins og það var í árslok 2011. Annars skal reikna raunvirði íslenskra bréfa. Sá stuðull sem nota skal er skattalegt bókfært eigið fé félagsins, deilt með heildarnafnvirði hlutbréfa í félaginu, eins og þessar fjárhæðir eru í skattframtali félagsins 2012. Ætti að vera hægt að nálgast hann hjá viðkomandi félagi. Á vefframtali er stuðullinn forskráður fyrir þau félög sem gert hafa full framtalsskil 2012. Fyrir erlend hlutabréf skal skrá markaðsvirði þeirra í árslok 2011 í dálkinn Raunvirði.

 

Fara efst á síðuna ⇑