Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 16.4.2024 10:04:51


Ξ Valmynd

7.10.5  Vistun aldraðra eða öryrkja

Greiðslur vegna vistunar aldraðra eða öryrkja í heimahúsum teljast að fullu til skattskyldra tekna, en á móti er heimilt að færa sannanlegan kostnað sem af vistuninni leiðir. Þegar ekki er um að ræða beinan atvinnurekstur, má í stað þess að leggja fram sundurliðaðan kostnað, færa frádrátt sem nemur tvöföldum ellilífeyri (grunnlífeyri). Fjárhæð þessi nam á árinu 2012 kr. 786.600 eða kr. 2.149 á dag.

Gera skal grein fyrir greiðslunum í lið 2.3. á framtali og frádrætti í lið 2.6, reit 157 samkvæmt greinargerð. Ef skilað er pappírsframtali þarf að fylgja greinargerð um tekjur og frádrátt. 

 

Fara efst á síðuna ⇑